• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to footer

HÍFOPP HÚSAVÍK

Siglinga- og tónlistarhátíð á Húsavík

  • Hvalaskoðun og siglingar
    • Hvalaskoðun á eikarbát
    • Hvalaskoðun á seglskútu
    • Gong-sigling á seglskútu

Hvalaskoðun á eikarbát

Komdu með okkur í eina vinsælustu hvalaskoðunarferð Íslands, þriggja klukkustunda siglingu um Skjálfandaflóa á fallegum íslenskum eikarbát.

Fjölmargar tegundir hvala leggja leið sína í flóann og hver veit nema þú sjáir forvitnar hrefnur, stökkvandi hnúfubaka eða jafnvel steypireyð, stærsta dýr jarðar!

Daglegar brottfarir í sumar:

  • Alla daga frá 1. mars til 30. nóvember
  • Sjá tímatöflu og nánari upplýsingar á vef Norðursiglingar

Lengd ferðar:

  • 3 klukkustundir

Innifalið:

  • Heitt kakó og kanilsnúður á heimsiglingunni
  • Full leiðsögn
  • Hlýir heilgallar og regnkápur ef þarf

Verð:

  • 11.300 kr. fullorðnir
  • 5.000 kr. 7-15 ára
  • Frítt fyrir yngri en 7 ára

Bókaðu ferðina þína hér:

Footer

Norðursigling

Norðursigling er fjölskyldufyrirtæki með heimahöfn á Húsavík og hefur boðið upp á hvalaskoðun og ævintýrasiglingar allt frá árinu 1995. Fyrirtækið er margverðlaunað fyrir frumkvöðlastarf í umhverfisvænni ferðaþjónustu, nýsköpun og varðveislu á norrænum menningararfi.

Meira

Gamli Baukur

Gamli Baukur stendur í hjarta Húsavíkurbæjar með útsýni yfir höfnina en þar er rekinn metnaðarfullur veitingastaður. Á matseðlinum eru gómsætir réttir og hráefnið ávallt það ferskasta úr nágrenninu. Á Gamla Bauk finna því allir eitthvað við sitt hæfi.

Meira

Húsavík

Húsavík við Skjálfandaflóa er merkilegur og áhugaverður áfangastaður. Allt frá landnámi hefur samspil íbúa við hafið verið lífæð samfélagsins. Varðveisla og uppbygging hafnarsvæðisins ber þess enn merki að sjósókn og strandmenning leiki þar lykilhlutverk.

Meira

© 2020 Norðursigling & Gamli Baukur - Hafðu samband: hallo@hifopphusavik.is